Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.5.2012 | 23:16
Í boði Samfylkingarinnar.
Þegar Ólafur Ragnar Grímsson, núverandi forseti Íslands, synjaði IceSavelögum 2 og 3 staðfestingar, þá reis hann upp á móti ofurvaldi Jóhönnu og Steingríms J og bauð útrásarvíkingunum byrginn.
Þetta hefur Samfylkingarfólk ekki viljað sætta sig við, og leitað logandi ljósi að kandítat á móti Ólafi Ragnari.
Og hver var fyrir valinu, jú, Þóra Arnórsdóttir, þá aðstoðarritstjóri Kastljóss og fyrrverandi kennari við Stjórnmálaskóla Samfylkingarinnar.
Og hvers vegna er Samfylkingarfólki svona mikið hjartans mál að trana fram Þóru á Bessastaði. Jú, til þess að koma okkur inn í ESB hvað sem það kostar.
8% skilja Þóru og Ólaf Ragnar að | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2012 | 10:33
Svartasti dagurinn í lýðveldissögunni.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sig. lofaði okkur siðbót, þ.e.a.s. hinu svokallaða Nýja Íslandi en hún hefur nú því miður gengið á bak þeirra orða sinna.
Nú verður Hrunið ekki, eða aldrei, gert upp. Gærdagurinn var svartasti dagurinn í lýðveldissögunni.
Ef það væri einhvern tíma kominn tími á að efna til mótmæla á Austurvelli, væri það ekki þá núna?
Atli Gíslason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Jón Bjarnason, Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson bera m.a. ábyrgð á þessum voðaverknaði.
Hafi þau skömm fyrir um aldur og ævi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.1.2012 | 11:59
Vonlítið ríkisstjórnarsamstarf
Ég er ósammála þeim orðum Jóhönnu Sig. frá því á gamlársdag að breytingarnar á ríkisstjórninni séu til þess fallnar að styrkja hana.
Því er nú þveröfugt farið, breytingin á ríkisstjórninni er bara til þess fallin að veikja hana fremur en að styrkja.
Tugir þúsunda Íslendinga eiga ekki fyrir brýnustu lífsnauðsynjum og á meðan er Jóhanna að ríghalda í vonlítið ríkisstjórnarsamstarf.
Rót við sameiningu ráðuneyta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2012 | 17:44
Landsdómsákæra
Mér finnst miður að biskup Íslands sé að setja sig upp á móti Landsdómsákæru á hendur Geir H. Haarde.
Auðvitað hefðu hinir þrír einnig átt að vera dregnir fyrir Landsdóm, en ber ekki Geir jafnmikla ábyrgð fyrir lögum og rétti fyrir því?
Ég segi jú.
Þurfum að horfa í eigin barm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.1.2012 | 15:29
Skaupið olli mér vonbrigðum
Ég var að horfa á Skaupið í tölvunni minni, og þarsíðast í gærkvöldi. Mér finnst vera nóg komið af þessari gömlu klisju Forsetans í Skaupinu, 'You ain't seen nothing yet'
Eins olli það mér vonbrigðum, að mest grín væri gert að Sjálfstæðis - og Framsóknarmönnum, en vinstrimenn hafi sloppið að mestu með skrekkinn.
Eins þykir mér mjög óviðeigandi að gera grín að harmleiknum í Noregi sem átti sér stað í sumar sl.
Þannig að mér finnst að RÚV og Skaupfólkið ætti að fara að taka til í eigin ranni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2011 | 07:09
Gamall Íhaldskunningsskapur.
Bjarni Benediktsson er þarna augljóslega að reyna að koma eigin flokksbróður til bjargar upp á gamlan Íhaldskunningsskap.
Fyrir þá sem eru búnir að gleyma, þá var Geir H. Haarde forsætisráðherra í hinni svokölluðu Hrunstjórn Íhalds og Samfylkingar.
Sú stjórn svaf á verðinum.
Þannig að mér blöskrar þessi þingsályktunartillaga Bjarna Ben.
Augljóst að falla skuli frá málssókn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2011 | 08:12
Hefur Forsetinn ekki líka tjáningarfrelsi?
Nohh, eru nú ekki Sósíalistarnir farnir að taka fram fyrir hendur Forsetans hvað varðar tjáningarfrelsi hans, hinir sömu og sitja á rassgatinu, ráðalausir og aðgerðalausir, og bíða eftir því að þjóðarskútan sökkvi.
Væri ekki hollast að gefa ,,vinstri-mið-hægri" pólitíkusunum frí og koma á fót utanþingsstjórn? Hvernig væri það?
Forseta lagðar línur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Þjóðfélagsumræða.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar